Hjálp:Breyta síðum

Úr MoodleDocs
Stökkva á:flakk, leita

Hver einasta wiki síða hefur "breyta" flipa efst á síðunni og þar að auki "breyta" krækjur til hliðar. Þessar krækjur gera notendum kleift að breyta viðkomandi síðum. Vinsamlegast prófaðu að breyta síðum í sandkassanum!

Forskoða

Þessi kostur gerir þér kleift að sjá hvernig síðan sem þú ert að breyta eða búa til kemur til með að líta út áður en þú vistar hana. Öll gerum við mistök og þessi kostur auðveldar okkur að sjá þau og lagfæra tímanlega. Með því að forskoða síður áður en þær eru vistaðar má einnig gera tilraunir með útlit og texta án þess að það hafi áhrif á breytingarsögu greinarinnar, sem er mjög gagnlegt. Mundu bara að vista greinar eftir að þú hefur forskoðað þær!

Yfirlit yfir breytingar

Áður en síða er vistuð er góð regla að skrá stutt yfirlit í reitinn yfir þær breytingar sem framkvæmdar hafa verið á síðunni. Yfirlit yfir breytingar er skráð í reitinn "Breytingar" sem er að finna fyrir neðan textaboxið.

Útlitsmótun

Flest útlitsmótun er framkvæmd með Wiki rithætti - þú þarft ekki að læra HTML!

Feitletrun og skáletrun

Feitletrun og skáletrun er framkölluð með því að umlykja orð eða setningu með úrfellingarmerkjum ('):

''skáletrað'' birtist skáletrað. (2 úrfellingarmerki beggja vegna)
'''feitletrað''' birtist feitletrað. (3 úrfellingarmerki beggja vegna)
'''''feitletrað og skáletrað''''' birtist feitletrað og skáletrað. (5 úrfellingarmerki beggja vegna)

Fyrirsagnir og undirfyrirsagnir

Fyrirsagnir og undirfyrirsagnir eru einföld leið til þess að bæta framsetningu greinar.

Fyrirsagnir eru myndaðar á eftirfarandi hátt:

==Fyrirsögn== (2 jafntog tákn)
===Undirfyrirsögn=== (3 jafntog tákn)
====3. stigs fyrirsögn==== (4 jafntog tákn)

Ef grein inniheldur fjórar eða fleiri fyrirsagnir birtist efnisyfirlit sjálfkrafa.

Inndreginn texti

Einfaldasta leiðin til þess að draga inn texta er að setja tvípunkt (:) í upphaf línu. Því fleiri tvípunkta sem settir eru því meira verður textinn inndreginn. Inndráttur texta takmarkast við efnisgreinar s.b.

Þessi texti er vinstrijafnaður.
:Þessi texti er aðeins inndreginn.
::Þessi texti er aðeins meira inndreginn.

birtist svona

Þessi texti er vinstrijafnaður.
Þessi texti er aðeins inndreginn.
Þessi texti er aðeins meira inndreginn.

Listar

Svona lítur hann út Svona er hann gerður
  • Það er einfalt að búa til óraðaða lista:
    • byrjaðu hverja línu á stjörnu
      • því fleiri stjörnur því fleiri undirstig
  • Ný lína
  • í lista

gefur til kynna að listanum er lokið.

* Það er einfalt að búa til ''óraðaða lista'':
** byrjaðu hverja línu á stjörnu
*** því fleiri stjörnur því fleiri undirstig
* ný lína
* í lista   
gefur til kynna að listanum er lokið.
  1. Númeraðir listar eru einnig einfaldir
    1. gott skipulag
    2. auðvelt að fylgja eftir
  2. ný lína
  3. í lista

gefur til kynna að listanum er lokið.

# Númeraðir listar eru einnig einfaldir
## gott skipulag
## auðvelt að fylgja eftir
# ný lína
# í lista  
gefur til kynna að listanum er lokið.

Útlit texta varðveitt

Svona lítur hann út Svona er hann gerður

Stafabil á undan texta eru ein leið til þess að varðveita útlitsmótun texta.

Stafabil í upphafi línu kemur í veg fyrir
að textinn verði útlitsmótaður
Stafabil á undan texta eru ein leið til þess að varðveita útlitsmótun texta.

 Stafabil í upphafi línu kemur í veg fyrir
 að textinn verði útlitsmótaður

Þú getur einnig umlukið kóða eða annan útlitsmótaðan texta með

<pre>

tagi.

Krækjur

Wiki krækjur

Krækjur í greinar innan wikivefsins verða til þegar settir eru tvöfalldir hornklofar utan um orð, eins og hér má sjá:[[Sandbox]]

Ef þú vilt notast við önnur orð en titil greinarinnar sem krækju er hægt að setja táknið "|" á eftir greinarheitinu með nafni krækjunnar.

Sem dæmi ef þú vilt búa til krækju í Mín síða en texti krækjunnar á að vera "textinn minn" getur þú búið krækjuna til á eftirfarandi hátt: [[Mín síða|textinn minn]]... sem myndi þá birtast svona: textinn minn... og myndi krækja í síðuna þína.

Útværar krækjur

Einfaldasta leiðin til þess að búa til útværar krækjur er að skrá í heild sinni vefslóðina sem ætlunin er að krækja í, t.d. http://moodle.com.

Til þess að láta texta krækjunnar vera annan en sjálfa vefslóðina er hún umlukin með hornklofum. Ef þú vilt krækja í moodle.com skrifaðu type [http://moodle.com/]. Núna birtist krækjan sem tala innan hornklofa [1].

Ef þú vilt sjálf/ur ákveða texta krækjunnar bættu honum við fyrir aftan sjálfa slóðina, en mundu að hafa stafabil á milli en ekki táknið "|". Þannig að ef þú vilt að krækja birtist sem Moodle þá skrifar þú einfaldlega [http://moodle.com Moodle] .

Flokkar

Grein er sett í flokk með því einfaldlega að skrá [[Category:]] og nafn flokksins er sett á milli tvípunktsins og seinni hornklofanna.

Til þess að krækja beint í flokk er notað [[:Category:Kennari | kennari]], þetta birtist sem kennari, taktu eftir ":" sem fer á undan og er ekki það sama og [[Category:Kennari| kennari]]. Síðari kóðinn setur viðkomandi síðu í flokkinn

Vísanir á milli tungumála

Hægt er að vísa í síður á öðru tungumáli með því einfaldlega að skrá [[en:Samsvarandi síðuheiti á ensku]] í íslenska hluta handbókarinnar eða [[is:Samsvarandi síðuheiti á íslensku]] í Íslensk Moodle handbók neðst á síðuna fyrir neðan flokka-krækjuna. Vísanir í önnur tungumál birtast sjálfkrafa í vinstri dálknum undir heitinu "Á öðrum tungumál".

Vísanir í notendasíður

Framlög í spjallsíður má undirskrifa og dagsetja með því á skrá inn fjórar tildur ~~~~. Þetta mun t.d. birtast sem Sigurdur Jonsson 06:35, 19 February 2006 (WST).

Útværar krækjur

nl:Meehelpen ru:Справка:Редактирование