https://docs.moodle.org/is/mod/quiz/edit

Úr MoodleDocs
(Endurbeint frá mod/quiz/edit)
Stökkva á:flakk, leita

Prófagerð í Moodle felur í sér tvö skref. Fyrst er próf valið sem viðfang í áfanga og eiginleikar þess skilgreindir. Næst er sýslað með spurningar og þær valdar sem eiga að tilheyra prófinu. Þessi síða lýsir fyrra skrefinu, þ.e. uppsetningu prófs í áfanga. Á síðunni Sýslað með próf er því lýst hvernig unnið er með spurningar og þeim raðað í próf.

Eiginleikar prófs

Prófakerfi Moodle býður upp á fjölbreytta valkosti og ætti kerfisstjóri þegar að hafa valið sjálfgefið gildi fyrir flesta þeirra og þannig einfaldað uppsetningu algengustu prófa. Kerfisstjóri hefur einnig val um að skilgreina einstaka stillingar sem 'ítarlegar' og birtast þær þá ekki sjálfgefið. Þetta er gert til þess að einfalda uppsetningu á prófum. Einfalt er að birta ítarlegar stillingar með því að smella á Sýna ítarlegar stillingar hnappinn. Ítarlegar stillingar eru sýnilegar þangað til smellt er á Fela ítarlegar stillingar hnappinn.


Nafn
Hverju einasta viðfangi í Moodle er gefið nafn. Nafnið er birt nemendum sem krækja í áfanganum og einnig á síðunni sem hefur að geyma upplýsingar um viðkomandi próf quiz index screen.
Inngangur
Skrifaðu lýsingu á prófinu. Mundu að tiltaka allar sértækar leiðbeiningar með prófinu, s.s. fjölda leyfðra tilrauna eða einkunnagjöf. Inngangurinn birtist nemendum eftir að þeir hafa smellt á nafn prófsins í áfanganum. Nemendur sjá því innganginn áður en þeir smella á hnappinn til að opna prófið og þar með áður en skeiðklukkan er birt (þ.e. ef hún er notuð).
Próf opnar
Hægt er að tilgreina hvenær prófið er opið nemendum. Fyrir þann tíma geta nemendur ekki tekið prófið. Þeir geta kynnt sér innganginn en ekki séð spurningarnar.
Próf lokar
Eftir að prófi hefur verið lokað geta nemendur ekki gert fleiri tilraunir. Svör sem nemendur senda inn eftir að prófi er lokað verða vistuð en ekki metin til einkunnar.
Nemendur geta lesið inngang prófs og skoðað eigin tilraunir eftir að prófi hefur verið lokað. Hvað þeir sjá nákvæmlega fer eftir stillingunum í Nemendur geta fengið yfirlit yfir prófið.
Tímamörk
Próf hafa engin tímamörk sjálfgefið, þ.e. nemendur hafa eins langan tíma og þeir vilja til að reyna við prófið. Þegar ákveðin tímamörk eru tilgreind er ýmislegt gert til þess að tryggja að nemendur ljúki prófinu innan þess tíma:
  1. Vefskoðari verður að styðja við Javascript svo skeiðklukka virki rétt
  2. Skeiðklukka birtist og telur niður tímann þangað til prófi lýkur
  3. Þegar tíminn hefur runnið út er prófinu skilað sjálfvirkt inn með öllum þeim svörum sem nemendur hafa klárað
  4. Ef nemanda tekst á einhvern hátt að svindla og eyða meira en 60 sekúndum yfir heimilaðan tíma fær hann sjálfvirkt einkunnina 0
Fjöldi spurninga á síðu
Það er góð regla að birta lengri próf á nokkrum síðum með því að takmarka fjölda spurninga á hverri síðu. Síðuskil birtast sjálfkrafa í samræmi við þessa stillingu þegar spurningum er raðað í prófið. Einnig er hægt að færa síðuskilin til handvirkt þegar sýslað er með prófið.
Handahófsraða spurningum
Virkjaðu þessa stillingu til þess að handahófsraða spurningum í prófi í hvert sinn sem það er tekið. Athugið að hér er verið að handahófsraða spurningum innan prófs í þeim tilgangi að gera nemendum erfiðara að lesa af skjám hvers annars. Ekki er verið að velja spurningar af handahófi í sjálft prófið.
Handahófsraða svörum
Virkjaðu þessa stillingu til þess að handahófsraða svörum innan spurninga í hvert sinn sem próf er tekið. Að sjálfsögðu á þessi stilling einungis við um spurningar sem innihalda fleiri en eitt svar, s.s. fjölvalsspurningar eða pörunarspurningar. Tilgangurinn með þessu er að gera nemendum erfiðara um vik að lesa af skjám hvers annars.
Leyfðar tilraunir
Hægt er að leyfa nemendum fleiri en eina tilraun við próf. Þessi valkostur hentar vel þegar próf er nýtt frekar sem námstæki heldur en námsmat. Ef spurningar eru valdar af handahófi fá nemendur nýja útgáfu af prófinu í hverri tilraun. Þennan kost má t.d. nota til að búa til æfingar eða þjálfunarpróf.
Tilraun byggir á næstu á undan
Ef heimiluð er fleiri en ein tilraun og þessi stilling er virkjuð þá inniheldur hver ný tilraun við prófið niðurstöðurnar úr þeirri sem á undan fór. Þetta gerir nemanda sem er að taka próf oftar en einu sinni kleift að einbeita sér að þeim spurningum prófsins sem hann svaraði rangt í tilrauninni á undan. Þessi kostur felur í sér að nemandinn fær alltaf sömu spurningar í sömu röð, óháð því hvort valið er að handahófsraða spurningum. Veldu nei hér til þess að birta nýja útgáfu prófsins við hverja tilraun.
Einkunnagjöf
Þegar leyfðar eru fleiri en ein tilraun við próf er hægt að velja úr nokkrum aðferðum til þess að reikna út lokaeinkunn nemenda í prófinu:
  • Hæsta einkunn - lokaeinkunn er hæsta einkunn nemanda í öllum tilraunum hans við prófið.
  • Meðaleinkunn - lokaeinkunn er meðaleinkunn (óvegin) allra tilrauna nemandans við prófið.
  • Fyrsta einkunn - lokaeinkunn er einkunn nemandans í fyrstu tilraun við prófið (aðrar tilraunir eru hunsaðar).
  • Síðasta einkunn - lokaeinkunn er einkunn nemandans í síðustu tilraun við prófið.
Aðlögunarhamur
Spurningar í aðlögunarham leyfa nemanda að gera fleiri en eina tilraun við einstaka spurningu áður en þeirri næstu er svarað. Aðlagandi spurning getur breyst í takt við svar nemanda, t.d. með því að birta vísbendingar áður en hann er spurður aftur. Þessi tegund spurninga er nýjung í Moodle og er lýst betur á síðunni Aðlagandi spurningar
Þegar þessi kostur er virkjaður fær nemandi fleiri en eina tilraun við spurningu, jafnvel innan sömu próftilraunar. Þannig að t.d. ef nemandi gefur rangt svar við spurningu fær hann samstundis aðra tilraun. Hins vegar á hann það á hættu að fá refsistig, allt eftir því hvernig þau eru skilgreind í viðkomandi próf
Þegar aðlögunarhamur er virkjaður birtist Senda hnappur við hverja spurningu. Ef nemandinn styður á þennan hnapp er svar hans við viðkomandi spurningu sent til yfirferðar og einkunnin birt nemandanum. Ef um er að ræða aðlagandi spurningu er hún birt nemandanum aftur á nýju sniði sem tekur mið af svari nemandans. Einfaldasta útfærsla á aðlagandi spurningu felur í sér endurgjöf til nemanda og nýja tilraun við spurninguna, flóknari útfærsla getur falið í sér nýjan texta við spurninguna og jafnvel tegund spurningarinnar.
Refsistig
Aðlögunarhamur gefur nemanda kost á að reyna oftar en einu sinni við spurningu sem hann svarar rangt. Í slíkum tilfellum er hægt að gefa nemanda refsistig fyrir hvert rangt svar. Refsistig eru dregin af heildarstigafjölda sem gefinn er fyrir viðkomandi spurningu. Refsistig eru tilgreind fyrir hverja einstaka spurningu þegar hún er búin til.
Þessi stilling hefur engin áhrif nema þegar aðlögunarhamur er virkjaður.
Aukastafir
Þessi valkostur tilgreinir hversu margir aukastafir birtast í einkunn. Sett er 0 hér til að hafa enga aukastafi. Þessi stilling hefur einungis áhrif á birtingu einkunnar, ekki svör.
Yfirlit nemenda
Þessi stilling ákvarðar hvaða upplýsingar eru birtar nemendum þegar þeir skoða tilraunir sínar við prófið á ólíkum stigum.
Nemendur geta fengið yfirlit fyrir eigin Svör, Stig fyrir svörin, Endurgjöf frá kennara (ef einhver er), rétt Svör og Almenna endurgjöf. Fyrir hvern valkost er hægt að ákvarða hvort hann er birtur nemanda strax að lokinni tilraun hans við prófið, síðar en á meðan prófið er enn opið eða eftir að prófinu hefur verið lokað.
Í núverandi útgáfu af Moodle birtast rétt svör nemendum ólíkt eftir því um hvaða tegund spurninga er að ræða. Ef um er að ræða pörunarspurningu sjá nemendur hvaða svar er rétt. Ef um er að ræða 'stutt svar' sjá nemendur eigin svar og yfirlit yfir öll rétt svör við öllum spurningum.
Birta próf í "öruggum" glugga
Þegar próf er birt í "öruggum" glugga er reynt að auka öryggi prófa (þ.e. gera afritun og svindl erfiðara) með því að takmarka ákveðna möguleika vefskoðarans.
Það sem gerist er eftirfarandi:
  1. Vefskoðari verður að styðja við Javascript
  2. Prófið birtist í sínum eigin glugga sem nær yfir allan skjáinn.
  3. Sumar aðgerðir sem hægt er að beita á texta með músinni eru óvirkar.
  4. Komið er í veg fyrir sumar flýtiskipanir með lyklaborðinu.
ATH: Þessi öryggisráðstöfun er EKKI fullkomlega örugg. ALLS EKKI treysta á þessa aðgerð eina til að tryggja öryggi prófs. Því miður er nánast ómögulegt að tryggja fullkomið öryggi við rafræna próftöku. Samhliða tæknilegum aðgerðum eins og þessari stillingu er góð regla að búa til stóran gagnaraunn spurninga og velja úr honum að handahófi. Einnig má nýta aðrar og fjölbreyttari leiðir við námsmat, s.s. umræður á umræðuvefjum, skrif á wikivef, vinnustofur, skilaverkefni o.fl.
Aðgangsstýra með lykilorði
Þessi stilling er valkvæm.
Ef skráð er lykilorð verða allir sem taka prófið að gefa það upp áður en þeir fá aðgang að prófinu. Þetta getur hentað ágætlega til að gefa ákveðnum hópi nemenda aðgang að prófi.
Krefjast IP tölu netkerfis
Þessi stilling er valkvæm.
Hægt er að takmarka aðgengi að prófi við ákveðið undirnet á staðarneti eða Netinu með því að gefa upp IP tölur að hluta til eða heild, aðskildar með kommu. Þessi kostur hentar vel þegar t.d. nemendur í ákveðinni stofu eiga að fá aðgang að prófi. Sýnishorn: 192.168.,231.54.211.0/20, 231.3.56.211
Hægt er að nota þrjár tegundir af tölum (nöfn á lénum eins og t.d. synishorn.is eru ekki heimiluð):
  1. Fullt IP netfang, eins og 192.168.10.1 sem samsvarar einstaka tölvu (eða seli).
  2. Hluta af IP tölu, eins og 192.168 sem samsvarar öllu sem byrjar á þessari tölu.
  3. CIDR ritháttur, eins og 231.54.211.0/20 sem gerir mögulega nánari skilgreiningu á undirnetum.
Stafabil eru hunsuð.
Hópavinna
Hér er hægt að skilgreina hvort prófið eigia að taka mið af hópaskiptingu. Stillingin hefur einungis áhrif á yfirferð kennarans sem þá sér nemendur og einkunnir þeirra flokkaðar eftir hópum.
Sýnilegt nemendum
Ákvarðar hvort prófið er sýnilegt nemendum. Ef enn er verið að byggja upp prófið er ráðlagt að fela það nemendum og koma þannig í veg fyrir að þeir reyni að skoða prófið og jafnvel taka það áður en það er tilbúið. Þessa stillingu má finna á öllum aðföngum og viðföngum í Moodle og er auðkennd með auga sem hægt er að smella á og þannig fela/sýna viðkomandi.

Sjá einnig