Kennari

Úr MoodleDocs
Útgáfa frá 4. febrúar 2007 kl. 21:12 eftir Sigurdur Jonsson (spjall | framlög) (Sjá einnig)
(breyting) ← Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Stökkva á:flakk, leita

Yfirlit yfir kennarahlutverkið

Kennari nefnist eitt af grunnhlutverkum Moodle. Önnur eru Kerfisstjóri, Nemandi og gestur. Þessum hlutverkum fylgja ákveðnar heimildir sem stýra því hvað notendur hafa leyfi eða ekki leyfi til að gera í skilgreindum þáttum Moodle. Í stuttu máli sagt þá getur kerfisstjóri gert næstum hvað sem er hvar sem er í kerfinu, kennari ræður yfir ákveðnum áfanga eða áföngum sem nemendur taka svo þátt í.

Hugtakinu "kennari" má breyta í eitthvað annað þegar áfangi er settur upp eða í sjálfum kerfisstillingunum. Til dæmis væri hugsanlega betur við hæfi í ákveðnum aðstoðum að nota orð eins og "leiðbeinandi", "prófessor" eða "þjálfari". Orðið "kennari" er sjálgefið og verður notað framvegis í þessari handbók.

Notanda er skipað í hlutverkið "kennari" í ákveðnum áfanga. Það, að vera kennari í einum áfanga, gefur viðkomandi notanda engin sérstök réttindi í öðrum áföngum. Til að mynda verður að bæta notanda við áfanga sem kennara, nemanda eða gesti til þess eins að veita honum aðgang að áfanganum.

Áfangastjóri

Í nýrri útgáfum af Moodle hefur kennarahlutverkið verið skilgreint nánar. Nú er til sérstakt hlutverk áfangastjóra. Áfangastjórar geta myndað áfanga og skipað kennara í þá auk þess að hafa öll réttindi kennara.

Kennari án ritheimildar

Til er hlutverkið "Kennari án ritheimildar" og hentar það ágætlega fyrir leiðbeinendur á námskeiðum.

Sjá einnig

Clicking on the "Teacher" link below will take you to the same place.