Um Moodle
Úr MoodleDocs
Moodle er hugbúnaðarlausn til að byggja upp netbundið námsumhverfi. Moodle er í stöðugri þróun og sérstaklega hannað með það í huga að styðja við kennsluhætti sem grundvallast á félagslegri hugsmíðahyggju.
Moodle er opinn hugbúnaður og geta allir sem áhuga hafa nýtt sér hann (samkvæmt skilmálum GNU Public hugbúnaðarleyfisins). Í grundvallaratriðum þýðir það, að Moodle er verndað af höfundarrétti en notendur búa engu að síður við ákveðið frelsi. Heimilt er að taka afrit af Moodle hugbúnaðinum, hagnýta og breyta á hvern þann hátt sem hentar svo lengi sem viðkomandi samþykkir að veita öðrum notendum aðgang að frumkóðanum; breyta ekki eða fjarlægja upprunalega leyfisskilmála eða höfundarrétt og láta sama leyfi ná yfir öll afleidd verk. Frekari upplýsingar má finna í heildartexta hugbúnaðarleyfisins og einnig má hafa samband við handhafa höfundarréttar ef einhverjar spurningar vakna.
Moodle er hægt að setja upp á öllum tölvum sem geta keyrt PHP forritunarmálið og styðja við SQL gagnagrunn (t.d. MySQL). Moodle keyrir á Windows og Macintosh stýrikerfum og mörgum Linux dreifingum (s.s. Red Hat eða [[Debian GNU/Linux installation|Debian GNU]). Fjölmargir Moodle samstarfsaðilar eru reiðubúnir að veita aðstoð og jafnvel hýsa Moodle vefinn þinn.
Orðið Moodle var upprunalega hugsað sem skammstöfun á Modular Object-Oriented Dynamic Learning Environment, sem fyrst og fremst er gagnlegt fyrir forritara og kennslufræðinga. Orðið er einnig sögn sem lýsir því að vinna við eitthvað á eitthvað á afslappaðan hátt, eða ánægjulegu fikti sem stundum leiðir til innsæis og sköpunar. Á þennan hátt vísar orðið Moodle bæði til þess hvernig hugbúnaðarlausnin var þróuð og einnig hvernig nemandi eða kennari gætu hugsanlega nálgast nám og kennslu á Netinu. Sá sem notar Moodle er Moodler.
Sjá einnig
- Hvað þurfa kennarar að vita? A good starting place to learn about the robust features in a Moodle course.
- The Moodle "Features" Course is a place to see how these things work.
- Later you might be ready for Demo.moodle. Here you can play on a Moodle site as a teacher, administrator or student. Or create a Moodle on your own computer
- The Moodle page at Wikipedia. MoodleDocs and Wikipedia both use MediaWiki.
- Moodle_manuals has many links or there is the Using Moodle book for those who must have an Adobe document to read or print.
- Here is where Moodlers share their "This is Moodle" presentations.
- Moodlemoots are exciting Moodle conferences all over the world, with both face to face and virtural components.
- Each of the links below will take you to a different alphabetical index of topics, such as the Administrator index or Teacher index.
Flokkar: Kjarni | Kerfistjóri | Kennari
