Áfangasnið
Úr MoodleDocs
Áföngum er skipt niður í aðgreinda hluta til í því skyni að koma skipulagi á aðföng og viðföng nemenda. Hver einstaka hluti getur innihaldið lýsingu og ótilgreindan fjölda bæði aðfanga og viðfanga.
Efnisyfirlit |
Uppsetning á áfangasniðum
Kennarar hafa um nokkur áfangasnið að velja við uppsetningu áfanga. Áfangasnið eru valin í uppsetningu áfanga undir liðum Uppsetning áfanga í kerfisstjórn.Myndin hér til hliðar er fengin úr útgáfu 1.7 af Moodle.
Eldri útgáfur eru með færri valkosti.
Vikuleg framsetning
Þegar valin er vikuleg framsetning áfanga eða námskeiðs birtast dagsetningar sjálfvirkt efst í öllum efnisþáttum. Tímasetningin ræðst af upphafsdagsetningu áfangans eins og hún er skilgreint í uppsetningu áfanga. Athugaðu að ef áfangi hefst á miðvikudegi samkvæmt upphafsdagsetningunni, endar kennsluvikan sjö dögum síðar, þ.e. á fimmtudegi. Óski kennari eftir því að kennsluvikan hefjist á sunnudegi og endi á mánudegi er einfalt að skilgreina upphaf kennslu á sunnudegi í uppsetningu áfangans óháð því hvort það sé í raun fyrsti kennsludagur.
Efnisþættir
Framsetning áfanga eða námskeiða með efnisþáttum hentar vel t.a.m. þegar námið er ekki bundið við ákveðnar tímasetningar eða þar sem röð viðfangsefna er ekki aðalatriðið. Þetta áfangasnið hentar einnig vel fyrir kennara sem skipulegja nám eða námskeið sem afmarkaða en tengda efnisþætti.
Hafðu í huga að það er hægt að hafa ótilgreindan fjölda aðfanga og viðfanga í hverjum einstaka efnisþætti.
Umsýsla efnisþátta
Hér má sjá fyrsta efnisþátt áfanga eins og hann birtist kennara í ritunarham. Efnisþátturinn þarf ekki að hafa titil eða samantekt en inniheldur í þessu tilfelli skilaverkefni. Frekari lýsing á táknmyndunum sem fylgja heiti viðfangsefnisins má finna hér.Í ritunarham er hægt að færa til einstaka efnisþætti, fela fyrir nemendum, merkja eða taka af merkingu. Í ritunarham getur kennari einnig sett titil og lýsingu/samantekt á hvern einstaka efnisþátt auk þess að vinna með þau aðföng og viðföng sem hann inniheldur.
Efnisþættir faldir
Einfalt er fela efnisþætti með táknmyndinni af auganu. Í uppsetningu áfanga er hægt að velja hvort þættir sem þannig hafa verið faldir eru algjörlega ósýnilegir nemendum eða birtir samanfallnir með texta sem segir að viðkomandi þáttur eða þættir séu ekki aðgengilegir. Faldir efnisþættir eru ætíð opnir kennurum áfangans og kerfisstjórum.
In Version 1.6 some activities such as Lessons, can be hidden with conditional dependency which in lesson setting. There are also non-standard addin features such as activity locking which will reveal an activity or a section only when the student has completed other activities.
A small hack: If you want to have a super-short course that is JUST the top with no section blocks, note that you must have at least one section. The solution is to have one, then make it invisible, and in your settings full hide hidden blocks. Now you have a "one main area" course.
Sjá einnig
- Using Moodle Removing topics/blocks from courses forum discussiones:Secciones del curso



