Sýsla með próf
Á skjámyndinni með umsýslu prófs er hægt að búa til spurningar, flokkar þær og raða í próf. Það sem sést á þessari skjámynd fer eftir því hvort nemendur hafa þegar hafið prófið eða ekki.
- Á vinstri hluta skjásins getur að líta spurningarnar sem valdar hafa verið í viðkomandi próf. Ef verið er að búa til nýtt próf eru engar spurningar sýnilegar og birtir Moodle tilkynningu þess eðlis.
- Á hægri hluta skjásins eru spurningaflokkarnir sýnilegir fyrir ofan spurningasmiðinn. Hér er hægt að bæta við nýjum spurningum eða breyta þeim sem fyrir eru. Einnig er hægt að færa spurningar á milli flokka og er því lýst betur á síðunni Spurningabanki.
Efnisyfirlit |
Spurningu bætt við próf
Eftir að spurningar hafa verið búnar til er hægt að bæta þeim við próf. Fjölmargar tegundir spurninga finnast í spurningabankanum. Þar að auki er hægt að flytja inn spurningar.
Oddklofarnir (<< icons) vinstra megin við hverja spurningu eru notaðir til þess að bæta einstaka spurningu við próf. Einnig er hægt að velja fleiri en eina spurningu og bæta þeim öllum við próf með því að haka við viðkomandi spurningar og smella svo á hnappinn "Bæta við próf" neðst í listanum. Hægt er að bæta öllum spurningum við próf með því að velja "Velja allt" krækjuna.
Þegar spurningu hefur verið bætt við próf birtist hún vinstra megin á skjánum. Spurninguna er ennþá hægt að velja hægra megin, en einungis er hægt að bæta hverri spurningu einu sinni við hvert próf. Ef þú velur spurninguna og bætir henni aftur við prófið gerist ekkert. Moodle1.8
Ef þú hefur búið til fjölda spurninga getur verið handhægt að raða þeim eftir nafni eða dagsetningu. Einnig er hægt að velja að birta texta hverrar spurningar fyrir neðan nafn hennar með því að haka í reitinn "Birta texta spurningar í spurningalista" fyrir ofan spurningalistann (Moodle 1.8 og nýrri útg.)
Þegar spurningu hefur verið bætt við próf er hægt að breyta röð spurninga með því að smella á örvahnappana vinstra megin við hverja einstaka spurningu í prófinu.
Mikilvægt er að skrá einkunn fyrir hverja einstaka spurningu. Í dálknum fyrir einkunnir eru skráð stig fyrir hverja spurningu. Þetta gerir þér kleift að setja hlutfallslegt vægi einstaka spurningar í prófinu og einfalt er að gera sumar spurningar veigameiri en aðrar. Þá er mikilvægt að skilgreina 'Hámarkseinkunn' prófsins, en hún þarf ekki að vera samanlögð einkunn allra spurninganna. Lokaeinkunn nemenda er reiknuð út frá þessari hámarkseinkunn. Eftir að búið er að skilgreina einkunnir prófsins er smellt á 'Vista einkunnir' hnappinn.
Spurningum bætt við af handahófi
Þegar handahófsspurningu er bætt við próf verður henni skipt út fyrir spurningu af handahófi úr völdum spurningaflokki - fyrir hverja tilraun.
Þetta hefur í för með sér að nemendur fá ólíka útgáfu af prófinu í hvert sinn sem þeir reyna við það. Þegar fleiri ein tilraun er heimiluð er hver tilraun einnig ólík annarri.
Sama spurningin er aldrei notuð tvisvar í einu og sama prófinu. Ef valdar eru nokkrar spurningar af handahófi er tryggt að enginn þeirra er sú sama. Ef blandað er saman spurningum af handahófi og fyrirfram ákveðnum spurningum sér Moodle til þess að sama spurningin birtist ekki tvisvar.
The grade for the randomly chosen question will be rescaled so that the maximum grade is what you have chosen as the grade for the random question.
Spurningar forskoðaðar
Þegar smellt er á stækkunarglerið næst hverri spurningu opnast gluggi þar sem hægt er að forskoða og prófa viðkomandi spurningu. ...
Einnig er hægt að forskoða prófið í heild sinni með því að smella á Forskoða flipann. This will bring you to the Quiz attempt page but in teacher preview mode.
Eftir að tilraun hefur verið gerð
Hafi þegar verið gerð tilraun við prófið birtist tilkynning þess eðlis að ekki er hægt að bæta við eða breyta spurningum í því. Hins vegar er hægt að eyða prófatilraununum (hægt er að nálgast þær með því smella á "Skoða x tilraunir (y nemenda)", þar sem x stendur fyrir fjölda tilrauna og y fyrir fjölda nemenda). Að því loknu er hægt að breyta og bæta við spurningum. Ástæða þess að ekki er hægt að breyta prófi eftir að það er hafið er að það myndi leiða til ruglins bæði fyrir nemendur og sjálft Moodle kerfið.
Hægt er að breyta spurningum og einkunnum eftir að próf er hafið. Þannig að í stað þess að eyða lélegri spurningu er hægt að breyta henni og setja inn útskýringu fyrir nemendur í stað texta spurningarinnar og 0 í einkunn. Eftir slíka breytingu á prófi er nauðsynlegt að endurreikna einkunnir með því að smella á flipan Niðurstöður og svo Endurreikna.
Sjá einnig
Snið:excerpted from Jason Cole


