Próf
Prófakerfið gerir kennara kleift að setja saman og leggja fyrir nemendur próf sem samanstanda af fjölbreyttum tegundum spurninga og má þar nefna fjölvalsspurningar, rétt-rangt spurningar og stutt svar spurningar. Spurningarnar eru geymdar í spurningabanka hvers einstaka áfanga og má endurnýta í áfanganum sem og milli áfanga. Hægt er að heimila fleiri en eina tilraun við próf. Hver tilraun er sjálfvirkt metin af prófakerfinu og kennari getur ákveðið hvort hann birtir nemendum endurgjöf og/eða sýnir rétt svör.
Endurgjöf er mikilvægur hluti námsstjórnunarkerfis og námsmat er einn mikilvægasti þátturinn í námi. Kennarar hafa enga leið til þess að sjá hvað er að gerast í höfðum nemenda sinna og því verðum við að finna leið til þess að gera þeim kleift að sýna okkur hvað þeir geta og skilja og hvað ekki. Vel hannað próf, jafnvel samansett úr fjölvalsspurningum, getur gefið áríðandi upplýsingar um námslega stöðu nemanda. Ef endurgjöfin er nógu markviss og stöðug getur hún einnig verið mikilvægt verkfæri fyrir nemanda að meta eigin stöðu og þannig nýst þeim í náminu.
Prófakerfið í Moodle inniheldur fjölda valkosta og verkfæra sem gera það einstaklega sveigjanlegt í notkun. Hægt er að setja saman próf með ólíkum tegundum spurninga, velja spurningar að handahófi úr spurningabanka, leyfa nemendum að gera fleiri en eina tilraun við hverja spurningu eða jafnvel taka heilu prófin oftar en einu sinni.
Þessir eiginleikar opna fyrir ýmsa möguleika sem ekki væru raunhæfir þegar próf eru lögð fyrir á hefðbundinn hátt. Það getur verið nógu mikil vinna að fara einu sinni yfir próf nemenda og nærri óhugsandi að fara 10 sinnum yfir próf hvers einstaka nemanda. Þegar tölvan vinnur verkið fyrir þig er mun einfaldara að gefa nemendum tækifæri á að taka könnunarpróf til að meta stöðuna sína, eða þá fjölda smærri prófa. Á síðunni Árangursrík notkun prófa könnum slíka möguleika.
This is the page where you can see all the quiz activities in the course, organized under four headings:
- Topic - the number of the block, in which the given quiz appears
- Name - the name of the quiz
- Quiz closes - the date after which the quiz will be closed
- Attempts - if there have been any attempts at the quiz, you will see the text 'View reports for x attempts (y Students)', 'x' being the number of attempts and 'y' the number of students attempting at the quiz. Otherwise, the field will be empty.

