Í ritunarham

Úr MoodleDocs
Stökkva á: flakk, leita

Efnisyfirlit

Almennt

Ritunarhamur er virkjaður eða gerður óvirkum með því að smella á krækjuna i ritunarham linkur.gif í kerfisstjórn áfangans eða með því að smella á hnapp I ritunarham.gif með sama nafni ofarlega í vinstra horni til hægri. Þessi valkostur er einungis aðgengilegur kennurum áfangans (hafi þeir ritheimild) og kerfisstjórum vefsins. Ritunarhamur gerir kennurum kleift að breyta útliti og virkni áfanga. Einfalt er að fara úr ritunarham með því að smella aftur á krækjuna "Úr ritunarham" í kerfisstjórn áfangans eða á hnapp með sama nafni (ath. krækjan og hnappurinn báru áður textann "Í ritunarham").

Eftirfarandi táknmyndir standa fyrir algengar aðgerðir í ritunarham:

Edit.gif - þessi táknmynd gerir þér kleift að breyta/uppfæra viðkomandi aðfangi eða viðfangi.
Help.gif - þegar smellt er á þessa táknmynd birtist hjálp í sprettiglugga.

Blokkir

Blokkum má raða með því að færa þær upp og niður eða til hægri og vinstri. Blokkir geta verið sýnilegar eða faldar. Blokkir má fjarlægja með því að smella á x táknið.

Eftirfarandi táknmyndir tengjast umsýslu blokka:

Block open.gif - blokkin er sýnileg. Smellt er á augað til að fela blokkina fyrir nemendum
Block closed.gif - blokkin er falin. Smellt er á augað til að gera blokkina sýnilega nemendum
Block delete.gif - smellt er á þetta tákn til að fjarlægja viðkomandi blokk úr áfanga eða námskeiði
Block up.gif - þetta tákn færir blokkina upp
Block down.gif - þetta tákn færir blokkina niður
Block left.gif - þetta tákn færir blokkina neðst í vinstri dálk
Block right.gif - þetta tákn færir blokkina neðst í hægri dálk

Hlutar

Efnisþættir eða vikur eru algengustu sniðmát áfanga eða námskeiða. Samantekt efnisþáttar eða einstaka viku sem birt er nemendum efst í hverjum hluta má breyta með því að smella á Edit.gif táknið.

Einstaka hluta má færa upp og niður og breyta þannig röð þeirra í áfanganum. Hluta má einnig fela eða gera sýnilega nemendum. Ef áfanginn eða námskeiðið byggir á efnisþáttum er hægt að merkja ákveðinn efnisþátt að virkum efnisþætti, þ.e. þeim efnisþætti sem verið er að vinna í á þeim tíma.

Open.gif - Opna augað merkir að efnishlutinn er sýnilegur nemendum. Hann er falinn með því að smella á augað
Closed.gif - Lokaða augað merkir að efnisþátturinn er falinn nemendum. Hann verður sýnilegur þegar smellt er á augað
Marker.gif - Smellt er á þetta tákn til að gera viðkomandi efnishluta að virkum/núverandi efnishluta


Eftirfarandi tákn eru sýnileg hvort sem Moodle er í ritunarham eða ekki

One.gif - Þetta tákn er notað til að birta einungis valdan efnisþátt
All.gif - Þetta tákn er notað til að birta alla efnisþætti áfangans/námskeiðsins

Aðföng og viðföng

Áfangar/námskeið samanstanda af aðföngum og viðföngum. Aðföngum og viðföngum má bæta við áfanga, fjarlægja, færa, uppfæra, sýna, fela eða tengja við nemendahóp. Kennari getur breytt einstaka aðföngum og viðföngum innan efnishluta með því að smella á meðfylgjandi táknmyndir.

Right.gif - þessi táknmynd er notuð til að færa einstaka efnisþætti til hægri (einnig til ör sem bendir til vinstri)
Move.gif - smellt er á hreyfitáknmyndina til þess að færa efnisþátt, aðfang eða viðfang, innan efnishluta eða úr einum efnishluta yfir í annan
Movehere.gif - "færa hvert?" táknmyndin birtist þegar verið er að færa einstaka aðfang eða viðfang


Delete.gif - smellt er á þetta tákn til þess að eyða aðfangi eða viðfangi úr áfanganum/námskeiðinu

Sjá einnig

Adding/editing_a_course