Nemendur

Úr MoodleDocs
Stökkva á: flakk, leita

Nemandi er notandi sem er innskráður í áfanga eða námskeið í Moodle. Hér verður notast við þetta hugtak, en frá og með útgáfu 1.7 af Moodle hafa orðið grundvallar breytingar á Moodle sem gera kerfisstjórum kleift að skilgreina mjög fjölbreytt hlutverk notenda í kerfinu.

Efnisyfirlit

Umsýsla með innritun nemenda

Nemendahluti áfangastjórnunar gerir kennurum kleift að skrá nemendir inn eða úr einstaka áfanga óháð því hvernig almennt er staðið að innritun á viðkomandi Moodle vef.

Frá og með útgáfu 1.7 er innritun nemenda hluti af hlutverka og heimildakerfi Moodle. Virknin er engu að síður svipuð og í fyrri útgáfum.

Handvirk innritun

Notendum eru birt tvö svæði, aðskilin með örvum sem vísa til hægri og vinstri. Vinstra svæðið inniheldur lista yfir innritaða nemendur en það hægra inniheldur aðra notendur (þ.e. hugsanlega nemendur). Ef um er að ræða lýsiáfanga er birtur listi yfir áfanga.

Til þess að bæta nemanda við áfanga er nafn hans fundið í listanum yfir alla nemendur hægra megin og smellt á örina sem vísar til vinstri. Hægt er að leita eftir nemendum með því að slá inn nafn þeirra eða tölvupóst.

Handvirk útskráning úr áfanga

Til þess að útskrá nemanda úr áfanga er fylgt sama ferli og hér á undan nema hvað nemendur eru færðir úr vinstri dálk yfir í þann hægri (með örinni sem vísar til hægri).

Sjálfvirk innritun nemenda

Ef innvær innritun er heimiluð (þ.e. nemendur geta innritað sig sjálfir) velja kennarar sérstakan skráningarlykil fyrir hvern einstaka áfanga og gefa nemendum upp. Athugið að kennarar geta samt sem áður innritað eða skráð nemendur úr áföngum handvirkt.

Sjá einnig

Enrolment plugins has information about different ways to enrol students

Course settings impact the student view of the course

Groups are ways to customize a student experience

My Moodle is a student home page